föstudagur, febrúar 28, 2003

Mig langar í bumbubana...
..eða einhverja svona sniðuga töfragræju sem lætur mann verða stinna og stælta án nokkurrar fyrirhafnar.. Svo ætla ég líka að finna upp bolludagsbollur sem eru ekki óhollar þannig að ég geti borðað 100 svoleiðis á mánudag. Mér er hins vegar alveg sama hvort saltkjöt er óhollt eða ekki því það er ógissla vont og ég hef engan áhuga á því að éta það. Og að lokum þá ætla ég annaðhvort að vera íþróttaálfurinn eða sjóræningi á öskudaginn, tja eða kannski hrekkjuskjóða (það er sívinsælt og alltaf klassískt).

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home