AAArrrrggg
EFNAGREINING DAUÐANS...............!! Var í verklegu áðan og allt virtist ganga mjög vel og ég var jafnvel farin að gæla við þá hugmynd að ég gæti komist fyrr heim og bara allt í gúddí... En neiii, þá sveif yfir mig einhver óhappaára og leiðin lá bara niður á við. Byrjaði á því að lausnin vildi ekki haga sér eins og hún átti að gera og niðurstöðurnar brengluðust mjög út frá því. Svo fór búrettan að leka og næstu 2 lausnir fokkuðust þess vegna. Þá sagði kennarinn mér þær gleðifréttir að ég yrði að endurtaka þetta og ég þurfti sem sé að vera KLUKKUTÍMA lengur og í millitíðinni tókst mér að brjóta eina dýra mælipípettu og svona fínt staðlað mæliglas og auðvitað verður þetta dregið af tryggingunni minni. Svo ætlaði kennarinn að vera mjög almennilegur og smyrja kranann á búrettunni fyrir mig en eitthvað hefur það klikkað því hann bara stífnaði og seinni tvær títranirnar klúðruðust líka... ég fékk samt að fara heim því kennarinn var orðinn svo leiður á að bíða eftir mér en það stefnir í að ég þurfi að endurtaka allt frá upphafi í vor........ GAMAN!!!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home