svekk..
Af hverju er ég alltaf svona óheppin með verslunarferðir? Í kringum afmælið mitt gerði ég dauðaleit að rauðum spariskóm og það var ekki til eitt einasta par í allri Reykjavík. Svona mánuði eftir afmælið stútfylltust allar skóbúðir af rauðum skóm í öllum stærðum og gerðum. Núna er ég svo að leita að sparibol fyrir árshátíð líffræðinnar. Það eina sem er til í búðunum núna eru svona klæðamiklir bolir/skyrtur/mussur sem eru ekki það sem ég er að leita að (þótt út af fyrir sig séu þetta ágætis flíkur) og svo væmnir bleikir og bláir fermingarbolir! Nú er ég búin með bæði Smáralindina og Kringluna og fann ekki einn einasta bol, jú reyndar einn sem ekki var til í minni stærð:( Hvert get ég eiginlega farið núna? Það er ekki eins og það séu búðir á Laugarveginum lengur.....

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home