laugardagur, febrúar 08, 2003

dagurinn
Fórum skötuhjúin áðan í langa gönguferð til að hressa upp á okkur eftir hátíðarhöld gærkvöldsins. Fengum okkur pulsu, lentum í stórhríð og kíktum jafnframt í Kolaportið. Ég hef ekki komið þangað í háu herranns tíð og var búin að gleyma hversu stórkostlegur staður það er. Það er bókstaflega hægt að fá allt þarna, það sem þig vantar og það sem engan vantar. Alls konar lítið skrítið drasl og stórt drasl líka. Helgi keypti geisladisk og var næstum búinn að kaupa málverk af grátandi dreng, æ þið vitið svona "fallega" mynd. Hann hætti hins vegar við það, hefði verið soldið dýrt spaug (svona í bókstaflegri) og ég var líka hálffegin. Hefði ekki viljað hafa þetta hangandi uppi á vegg, hvort sem það væri fyndið eða ekki. Við fengum okkur svona kókosbollu/buff til að innsigla plebbastemmninguna og Helgi fékk sér líka hákarl svona rétt til að kitla bragðlaukana. Fórum svo á Listasafn Reykjavíkur til að vega upp á móti portina. Þar var einhver Porsche sýning, af hverju er bílasýning í listasafni?? Voru reyndar drulluflottir bílar, án þess að ég hafi hundsvit á slíku. Svo var ágætis sýning uppi, skreytingar úr gömlum handritum eftir einhvern Jón bónda. Rosaflottir skrímslakallar:) Nenntum ekki að skoða Erró og héldum heim á leið, sæl og glöð með kókosbollu og pulsu í maga! Auf Wiedersehen..

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home