mánudagur, janúar 27, 2003

Fór í morgun og fjárfesti í korti í Hreyfingu þar sem þar var eitthvað tilboð í gangi fyrir Þórshamarsfélaga. Er sem sé núna búin að skuldbinda mig í 7 mánaða líkamsrækt samhliða karateþjálfuninni. Fékk smá í magann þar sem ég hef aldrei keypt kort til svona langs tíma áður, hef í mesta lagi keypt þriggja mánaða kort og sjaldnast notað það mjög vel. Hins vegar var ég mjög dugleg fyrir jól og stefni á að nýta mér þetta kort mjög vel, heppilegt að Hreyfing er bara eiginlega alveg við hliðina á Grensás og þá verð ég alltaf voða dugleg að hlaupa yfir... (krossum fingur).. Eníveis... ég stefni á að líta svona út í haust...

...ehhh eða ekki.. þetta er það ljótasta sem ég veit, svona vaxtarræktarvibbi...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home