Geri-komplex
Ég á það til að verða heltekin ákveðnum komplex, ég kalla hann gerikomplex (þeir skilja sem skilja)! Þessi komplex lýsir sér þannig að í kollinum á mér kemur fram einhver ótrúlega smásmuguleg spurning sem ég get ekki munað svarið við en ég veit samt að ég á að vita það! Dæmi: í hvaða sápuóperu lék þessi leikari aftur?? dæmi: hvernig var aftur lagið með henni Paulu Abdul sem sló svo í gegn fyrir 15 árum? þið skiljið allavega hvað ég er að fara.... Vanalega verð ég svo obsessed á þessu að ég verð að gera allt sem í mínu valdi stendur til að muna svarið, annars ligg ég jafnvel andvaka á kvöldin!! Í gær yfirtók þessi komplex okkur Sólveigu, einhverra hluta vegna þurftum við að muna hvað geisladiskurinn með Green Day, æ þessi sem kom út svona '95 (með When I come around og öllum þeim) hét... Gerikomplexins vegna þá var okkur svo ómögulegt að muna þetta! Eftir miklar vangaveltur og mikinn pirring og meira segja eftir að ég hafði þulið allt stafrófið og reynt að kalla nafnið fram var ég komin með nokkuð glögga hugmynd! Var handviss á að nafnið byrjaði á D og væri svona stutt og snaggaralegt tveggja atvæða orð, Dookie datt mér í hug! En neeiii, Sólveig trúði mér ekki:) Hún var nefnilega ennþá verr haldin af þessum komplex. Þegar ég svo kom heim í gærkveldi og áður en ég fór í bólið neyddist ég til að tékka á þessu. Og viti menn, auðvitað hafði ég rétt fyrir mér og hafði þar með sigrast á gerikomplexinum ógurlega en Sólveig sat hins vegar eftir í svaðinu.... lifið heil!!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home