fimmtudagur, janúar 23, 2003

Helgin nálgast óðum og er það bæði gott og vont! Mér til lítillar gleði er Björg "stóra" systir að fara aftur til Ungverjalandsins ljóta (segi nú bara svona) á morgun og ég hitti hana ekki fyrr en í sumar. Tja, ekki nema mér takist að skrapa saman einhverjum smáaurum og fara bara í heimsókn:) Hins vegar er ég líka að fara að hitta Ingu og Birnu annað kveld og munum við njóta góðra veitinga og dreypa á góðu víni... sú blanda klikkar aldrei og spái ég því miklu stuði. Á laugardagskveld ætla svo hin alræmdu Ketone Bodies að hittast á Stælnum eða öðrum góðum og verður það eflaust minna stuð en kvöldið áður. Einhvern tímann í millitíðinni gríp ég svo eflaust í skólabók og knúsa jafnvel kallinn...Ekki verður minni gleði helgina þar á eftir því loksins, loksins er búið að setja dagsetningu á margumtalað fermingarpartý hjá okkur vinkonunum. Þar verður fermingarkjóll skylduklæðnaður og nú verð ég bara að kasta mér inn í geymslu og krossa fingur að ég hafi ekki hent mínum í einhverri maníu.... þar til næst!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home