sunnudagur, febrúar 02, 2003

Bros
-Ánægð með "strákana okkar" í morgun...til hamingju Íslendingar:)

-Í gærkvöldi var fermingarboðið ógurlega haldið með pompi og prakt! Allir mættu í sínu fínasta pússi, altså fermingarátfittinu og hef ég ekki hlegið svona mikið í óratíma. Að sjálfsögðu var ég með myndavélina á lofti og þegar ég nenni að fatta aðferðina þá skelli ég þeim hérna inn. Ragnheiður Ásta var ótvíræður sigurvegari kvöldsins, var klædd í anda Rympu á ruslahaugunum! Alveg hreint dásamleg, ég er ennþá að hlæja. Helgi átti líka nokkuð sterkan leik, gamli fermingarjakkinn var grafinn upp og þvílíkt snið!!!!!! En meira af því síðar... Lifið heil!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home