Dettur engin fyrirsögn í hug
-Jæja, bara allt fínt að frétta af mér. Loksins komin langþráð helgi eftir frekar leiðinlega skólaviku. Fór í vísindaferð á Náttúrufræðistofnun í gær, bara fín ferð. Missti reyndar af túr um Reðursafnið því ég fór í afmælismat til Dóra, vinar Helga. Kíkti svo aftur á krakkana á Port City Java og var fólk bara komið ansi vel í glas. Ég var einum 4 stundum á eftir þeim í drykkju og lagði ekki í að ná þeim. Var nú ekki lengi í þetta skiptið enda mætt galvösk út á Þjóðarbókhlöðu núna.
-Helgi fer hér hamförum í umræðu sinni um Valentínusardaginn og Rásta er heldur ekki hrifin. Verð að taka undir með þeim. Kjána dagur..
-Og svo verð ég að segja að lokum, hvað er málið með þessa kjánalegu stúdentapólitík?? (ok, veit að nokkrar Margrétar sem ég þekki eru ekki alveg sammála mér þannig að ég segi ekki meir)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home