Jæja
nú er ég komin heim frá Ungverjalandi og aftur hingað í skólann. Ferðin var stórgóð í alla staði. Mér hefur hins vegar aldrei fundist gaman að þylja upp ferðasögur þannig að ég vísa í Björgu með lýsingu á fyrstu tveimur dögunum í Debó.
Áður en ég mætti til Ungverjalands var ég svo búin að spóka mig í Kaupmannahöfn í hálfan dag og varði þar drjúgum tíma í H & M sem svo sárvantar á Íslandi. Afrekaði í rauninni ekki mikið annað þar en að þeysa Strikið fram og til baka svona 4 sinnum.
Á laugardagskvöldið í Debó héldum við svo á Íslendingahitting í gömlu íbúðinni hennar Bjargar. Mér fannst alveg sérstaklega fyndið að sjá að þegar fólk umgengst hvort annað í svo miklu magni þá fara allir að tala eins. Allir þessir krakkar segja t.d. ómennskt, suddi og að vera lítill í sér í annarri hverri setningu. Ekki get ég sagt að ég hafi orðið vör við svo mikla notkun þessara orða neins staðar annars staðar. En þetta var bara innskot:)
Í þessum hittingu drukkum við bjór í ómældu magni og héldum svo í "bæinn", fórum á 2-3 staði sem kannski spiluðu ekki bestu tónlist í heimi en mikið var samt dansað. Við Björg ásamt 2 öðrum íslenskum strákum dönsuðum í raun alla nóttina, allt þar til við Björg áttum að taka lestina til Búdapest.... Eins og gefur að skilja varð ekki mjög mikið úr þessari lestarferð svo snemma dags og því ákváðum við að blunda aðeins áður en haldið væri í stórborgina. Vorum þvi ekki komnar til Búda fyrr en um fjögur og áttum pantað borð á Gundel kl. átta. Þess vegna sá ég ekki gríðarlega mikið að stórborginni, en það sem ég sá leist mér mjöög vel á. Þarf bara að fara þangað aftur...Nóg í bili, lærdómurinn kallar..

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home