Heimilisofbeldi??
Eftir að ég byrjaði að stunda karate þá hugsa ég að það séu nokkrir sem haldi að ég sé beitt miklu heimilisofbeldi! Ég er alltaf með risastóra og einkennilega lagaða marbletti á höndunum á mér og þetta er eiginlega orðið frekar vandræðalegt. Núna er ég t.d. með marbletti á höndunum sem líta út fyrir að vera för eftir reipi eða eitthvað álíka. Tja, annaðhvort heimilisofbeldi eða mjög mikið S&M kynlíf!!! Það dettur sjálfsagt fáum í hug að þessir marblettir séu brunasár eftir karategallann:)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home