dapurt
Ekkert smá dapurt hvað ég hef lítið að segja. Ég vona samt að það hafi eitthvað með það að gera að ég er í svona semi-prófalestri, þ.e. þótt ég sé ekki komin alveg á fullt skrið þá er ég alltaf að gera tilraunir til þess að lesa. Þ.a.l. er ég alveg hætt að gera nokkuð sniðugt eða hitta sniðugt fólk:( Vá hvað ég hlakka til að klára prófin. Björk var að spyrja mig hvort ég væri búin að ákveða hvað ég ætlaði að gera um áramótin, það er strax búið að bjóða henni í eitt partý. Vá hvað ég var ekki farin að pæla í þessu, það hefur líka sýnt sig og sannað fram að þessu að því meira sem ég plana og skipulegg því meiri vonbrigði eru það. T.d. var ég búin að velta aldamótunum fyrir mér í marga mánuði (eða svo gott sem) og kaupa mér pæjukjól og skó og allt hvað eina. Þegar á hólminn var komið var ég svo með 40 stiga hita og eyddi nóttinni í það að liggja í móki. Þess vegna ætla ég að hafa áramótin núna svona spontant gleði!!!
Annars er prófkjör hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík um næstu helgi og hvet ég alla flokksbundna sem lesa þessa síðu (þvílík bjartsýni, eins og það sé einhver...) til þess að setja Bigga bró í 6.sætið:)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home