loksins
Fór loks í gær að láta fjarlægja seinasta djöf....s endajaxlinn og viti menn, það bara tókst í þetta skiptið (með tilheyrandi sársauka og aukaveseni þó)! Þannig að nú er ekki hægt að pína mig meira, ekki nema ég sé vansköpuð með fleiri en 4 endajaxla! Það væri líka alveg dæmigert fyrir mig og mína seinheppni!
Af helginni er bara allt gott að segja, mikið stuð á kræklingakvöldi og kallinn fékk bara 2 medalíur á kumitemótinu :) Lærdómurinn var svona aukaatriði en hér með set ég mér það markmið að láta það ekki gerast aftur. Bara mánuður í próf og svona... díses hvað það er stutt..... best að fara að læra

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home