mánudagur, október 28, 2002

snjór...!!
Ég er komin í gasalegt jólaskap, kannski aðeins of snemma á ferðinni en samt... það er farið að snjóa og svona... Verst bara að maður er í prófum alveg til 21. des! Ég hins vegar hef 10 daga fyrir það próf þannig að ég tek mér líklega smá frí og baka nokkrar kökusortir, er svo húsmóðurleg:) Segi bara eins og Svala hérna um árið.........ég hlakka svo til, ég hlakka alltaf svo til

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home