fimmtudagur, október 31, 2002

Veturinn kominn
Eins og ég er nú ánægð með bílinn minn og heppin að þurfa ekki að ferðast með strætó eins og Björk þá varð ég samt ansi pirruð í morgun. Ég var allt of sein í skólann og ætlaði að hoppa upp í bílinn og bruna á Grensás og rétt sleppa inn í vistfræðifyrirlestur. En neeiiiiiii... ég komst ekki inn í bílinn:( Hurðirnar bæði bílstjóramegin og farþegamegin voru frosnar fastar og ekkert gekk að opna þær, sama hvað ég hjakkaðist mikið! Ég kallaði á Helga og ekkert gekk honum heldur! Á endanum þurftum við að opna skottið og troðast þar í gegn og tókst reyndar að opna afturhurðirnar innanfrá. Það var aðeins auðveldara að klifra þaðan yfir í bílstjórasætið. Ég kom þvi eins og gefur að skilja allt of seint í skólann..Svo þegar ég fór út á bensínstöð og var búin að troða mér út um afturdyrnar og var að sýna gæjanum þar hvað þetta væri nú frosið og leiðinleglt þá opnaðist hurðin eins og ekkert væri... honum fannst ég ábyggilega mesti lúðinn í bænum
Mér tókst líka að skera mig með ostaskera áðan og váaa hvað blæddi mikið og það er sko bara ekki þægilegt skal ég segja ykkur:/

Svo er ég líka soldið ósátt við það að fá ekki mynd af mér á tenglasíðuna hans Hlyns, tvíburabróður Bjarkar! Allir eru með litla sniðuga mynd af sér nema ég og Baldur Héðins... Við erum bara einhver lásí tákn... Hvað er málið með það?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home