fimmtudagur, nóvember 07, 2002

Ji minn
Ekki það að ég sé harðasti femínisti sem til er en mér finnst þetta samt fáránleg hugmynd hjá jafnréttisnefndinni. Mér finnst bara verið að gefa í skyn að stelpur séu heimskari en strákar og þess vegna sé það eina sem dugi til að fá fleiri stelpur inn í verkfræðideildina að létta námið!! Hvaða rugl er það??? Hefur engum dottið í hug að kannski séu bara svona fáar stelpur í verkfræði vegna þess að námið er bara ekki nógu skemmtilegt??!?!?!??! og það er náttla alkunna að stelpur eru meiri smekkmenn en strákar.....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home