fimmtudagur, nóvember 14, 2002

hellú

Á að vera að láta mér leiðast yfir vistfræði en finnst skemmtilegra að hanga á netinu. Fyndið hvað áhugasvið fólks eru rosalega ólík, t.d. skil ég bara ekkert í þessum fögum sem Ragnheiður vinkona mín er í og er að velja sér. No offense Rásta mín, en hvað er Strjál stærðfræði:) Lífmælingar hljóma bara vel við hliðina á því.... En mörgum finnst það sjálfsagt ekki og það er líklega eins gott því annars væru allir að gera það sama...

Annars fór ég með Ingu á gelgju/kellingamynd í bíó í gær. Ákváðum að skella okkur á stórmyndina Sweet Home Alabama og mæli ég ekki með henni.. Hún var svosum áhorfanleg sökum fagurs karlpenings og nokkrum sinnum tókst okkur að hlæja, oftast þó á vitlausum stöðum þar sem við hlógum að en ekki með myndinni... Þetta er samt svona kjörin videóspóla fyrir nokkrar vinkonur að taka saman, svona eins og Glitter hér forðum!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home