enn og aftur
Mikið verð ég endalaust glöð og ánægð eftir eina og hálfa viku. Þá verð ég vonandi (krossa fingur) búin að skila af mér báðum hræðilegu ritgerðunum mínum og búin með alla fimm fyrirlestrana sem ég þarf að halda á þessari önn! Þá reyndar tekur ekkert mikið skemmtilegra við... skólabækurnar sem nánast hafa fengið að liggja ósnertar uppi í hillu sökum annarra anna verða teknar upp og prófalestur hefst... og ekki má gleyma vísindagreinunum sem eru ábyggilega farnar að nálgast hundraðið sem eru til prófs í Frumu2.. en hugsa bara um eitt í einu... eða ég reyni það allavega.
Það getur verið soldið erfitt að einbeita sér að námi vitandi það að bráðum fáum við belgur nýju fínu íbúðina okkar í hendurnar eða lyklana að henni öllu heldur. Mig langar svo að byrja strax að mála og innrétta og stússast en verð að sitja á rassinum og bíða þar til prófum lýkur. Þá hefst innflutningsmaraþon og jólaundirbúningsstúss á fullu. Seinasta prófið mitt er 19.des. og hef ég því fimm daga til þess að flytja inn og gera allt dásamlegt fyrir jólin. Ohhh.. hlakka til að setja upp jólaseríur og jólatré og allt heila klabbið á Öldugötunni. Best væri líka að geta bakað a.m.k. eina sort eða svo bara til að fá góða jólabaksturslykt í íbúðina.
Það er sem sagt mikið verk fyrir höndum fram að jólum... Mikið er ég heppin að Björg systir kemur einmitt heim 19.des og verður því bara sett beint í það að vera flutnings- og jólaundirbúningsaðstoðarmaður minn;)
En best að snúa sér að því sem næst er á dagskránni og það er að klára fyrirlesturinn fyrir málstofuna...og borða nokkrar baby-gulrætur með (er sko að reyna að hætta þessu toblerone áti)..

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home