miðvikudagur, janúar 08, 2003

Taka tvö

-Hér með geri ég aðra tilraun til að setja mig í blogghaminn og bjarga heiðri þessarar síðu..

-Ok, skólinn byrjaður á ný, öllum til mikillar gleði og í fljótu bragði virðist mér nóg verða að gera í lærdómi og slíku...bjakk

-Glápti á góða mynd í gær, Last Night heitir hún og er kanadísk, hélt að þetta yrði kannski langdregin artífartí en hún kom ánægjulega á óvart. Sarah Polley sem allar stúlkur á mínum aldri kannast við úr Leiðinni til Avonlea var m.a. þarna í smáhlutverki. Fjallaði um það hvað fólk myndi gera kvöldið fyrir heimsendi... Spurning hvað maður sjálfur myndi gera ??? Allavega góð mynd sem ég mæli með....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home