Uppi á hól...
-Í mogganum í dag var verið að tala um nýja útgáfu á "Jólasveinar ganga um gólf..". Máni var einmitt að syngja þetta lag með Helga um daginn og þá tókum við eftir því að búið er að breyta textanum ansi mikið síðan ég lærði það. Í dag er sungið:
Jólasveinar ganga um gólf með gildan staf í hendi
móðir þeirra (hér var eitthvað sem ég man ekki..) og hýðir þá með vendi
Uppi á hól stend ég og kanna
níu nóttum fyrir jól þá kem ég til manna
En ég söng alltaf:
Jólasveinar ganga um gólf með gylltan staf í hendi,
móðir þeirra sópar gólf og flengir þá með vendi.
Uppi á stól stendur mín kanna,
níu nóttum fyrir jól þá kem ég til manna
Mér finnst gamla útgáfan af laginu miklu skemmtilegri og það skiptir mig engu hvort hún meikar sens eða ekki. Skil ekki af hverju þarf endilega að breyta textanum..
Annars er ég bara komin með hálsbólgu og kvef og nenni alls ekki að standa í prófalestri svona....*snökt*
Hér er svo jólafyrirbæri dagsins, þetta er sko hreyfimynd (hún stoppar sko stundum, veit ekki alveg af hverju)


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home