miðvikudagur, desember 18, 2002

3:1
Vei vei, á bara eitt próf eftir, verst hvað það er dauðans leiðinlegt fag! En svo koma bara jólin! Fór í Smáralindina í gær og vá hvað var mikið jólabrjálæði í gangi þar. Ég smitaðist aðeins af þessari maníu og hljóp æst og sveitt á milli búða og reyndi að finna gjafir og varð ennþá æstari og sveittari þegar ekkert gekk! Bætti ekki úr skák að ég þurfti alltaf að hósta og snýta mér inn á milli. Var á tímabili orðin svo rugluð að ég var farin að tala við sjálfa mig og þylja upp hvað ég ætti eftir að gera og svona...

í dag er það svona púkaleg helgimynd, kannski finnst einhverjum þetta fallegt ég veit ekki....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home