fimmtudagur, nóvember 21, 2002

Frægt fólk
Björk var að benda mér á það hvað systkini mín eru miklu frægari en ég. Bróðir minn er í blaðinu á hverjum degi um þessar mundir og svo var heilsíðuviðtal við systur mína í stúdentablaðinu núna! Ég verð að fara að taka mig á!! Ég hef aldrei komið í blaði eða sjónvarpi. Reyndar bauðst mér að koma í fréttablaðið í vor þegar Ragnheiður komst á snoðir um það að mér bárust öll jólakortin mín í MARS. Hafði furðað mig á því um jólin að enginn hefði sent mér kort og hélt að stelpurnar væru að ljúga þegar þær sögðust hafa sent mér kort;) Mér fannst samt asnalegt að koma í fréttablaðinu undir e-i kjánalegri fyrirsögn og sagði nei. Kannski var það mitt fyrsta og eina tækifæri til að verða fræg...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home