laugardagur, nóvember 30, 2002

Bond

Fór á nýju Bond myndina í gær. Byrjaði ágætlega en ég get nú ekki sagt að ég hafi verið neitt sérstaklega hrifin, jú það var fullt af sniðugum hasaratriðum en þau virka ekki þegar handritið er svona þunnt!! Af því að ég er líka svo mikill líffræðingur þá fór ótrúlega í taugarnar á mér allt kjaftæðið og aðferðirnar í kringum það að skipta á DNA-i í manneskjum....þvílík endemis vitleysa. Hefði samt getað leitt það hjá mér ef það hefði verið eitthvað vit í hinu en það var því miður ekki.

Annars er ég enn í jólastemmningu og skreyti þess vegna þessa færslu í tilefni aðventunnar á morgun

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home