enn ein fyrirsögnin sem mér ekki dettur í hug
Bara mjög gaman í gær í vísó... át yfir mig af Lays snakki í Egils.. Eftir ferðina þá fórum við á Astró þar sem ég hitti bara alveg glás af fólki, þ.á.m. stelpurnar þær Björk, Rást og Sols... Við ákváðum að skella okkur yfir á e-n nýjan stað þar sem Sportkaffi var áður og fengum gefins áfengi. Þar hittum við enn fleira fólk en get annars ekki sagt að staðurinn hafi heillað mikið, leiðinleg lög og það eina sem var gott við Sportkaffi (billjard-borðin) er horfið... Svo vorum við Björk bara skynsamar og fórum snemma heim og pabbi hennar Bjarkar var svo elskulegur að sækja okkur og ég var svo skynsöm að gleyma símanum mínum í bílnum hans...:) En við höfum náð saman á nýjan leik í dag og urðu miklir fagnaðarfundir þegar við hittumst aftur (hjá mér og símanum þ.e.a.s.)...Æ bara annars ekkert...dararadamdam

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home