-Í gærkvöldi ætlaði ég að fara á bókaupplestur í Iðnó, nokkur ung skáld (eða ungskáld) áttu að lesa upp úr bókum sínum. Við Helgi skildum auglýsinguna eitthvað vitlaust því við mættum klukkutíma of snemma og nenntum ekki að hanga eftir þessu. Fórum í staðinn á Súfistann sem er alltaf jafnnotalegt kaffihús, gluggaði í nokkrar bækur sem gætu jafnvel ratað í einhverja jólapakka...
-Var svo mætt galvösk klukkan sextán mínútur yfir átta á Hlöðuna í morgun og missti sem sé af tækifærinu til þess að troða mér framarlega í röðina. Þegar ég kom upp náði röðin niður alla stigana en ég var samt heppin og fékk borð á skikkanlegum stað. Mér finnst fáránlegt að þurfa að rífa mig upp fyrir allar aldir til að fá borð á þessu skrambans bókasafni. Verst hvað stólarnir eru óþægilegir á VR2 og hvað Grensás er langt í burtu.
-og svo auðvitað...


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home