16 dagar til jóla
-Loksins er komin hálka og ég þarf ekki lengur að vera með sammara yfir því að tæta upp götur bæjarins á nagladekkjunum á kostnað hinna skattborgaranna....Týpískt samt að ég labbaði heim úr skólanum í gær, með fullt af töskum og pokum á strigaskóm og var 3 x nærri flogin á hausinn, þurfti að baða út örmum til að ná jafnvæginu aftur!
-Í dag á annars hún amma Bauka afmæli: TIL HAMINGJU AMMA:) ekki það að hún lesi þessa síðu, veit sjálfsagt ekki hvað internetið er...:S Þess vegna hef ég eitthvað að hlakka til í prófalestri dagsins, fer í kaffi til hennar leiter on
...ekkert smá sækó jólatindáti...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home